Corporate finance

Capacent Glacier veitir óháða ráðgjöf tengda kaupum og sölum á fyrirtækjum, fjármögnun, fjármálaráðgjöf og fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja í nánu samstarfi við Glacier Partners í New York.  Starfsmenn okkar hafa áralanga og víðtæka reynslu af að ná árangri fyrir viðskiptavininn, byggða á árangursríkum innlendum og alþjóðlegum verkefnum. Þekking og reynsla okkar á sviði sjávarútvegs og orkugeirans, ásamt öflugu tengslaneti,  gerir okkur kleift að vinna með fjárfestum og fyrirtækjum í atvinnulífinu hérlendis sem og erlendis.

Ráðgjöf við sölu, kaup og sameiningar
Fyrirtæki og eigendur þeirra geta staðið frammi fyrir ýmsum úrlausnarefnum í sínum rekstri.  Þau geta snúið að ytri vexti eða sölu, stöðumati fyrirtækja, aðkomu nýrra fjárfesta eða endurskipulagningu fjárhags. Við vinnum að sölu fyrirtækja í samvinnu við eigendur þeirra þar sem markmiðið er að auka líkur á sölu og hámarka virði fyrirtækisins. Hafi fyrirtæki áhuga að kaupa önnur fyrirtæki veitum við ráðgjöf varðandi verðmat, aðferðafræði, skjalagerð og annað til að ljúka við kaupin. Ennfremur aðstoðum við fyrirtæki við leit að kauptækifærum og veitum einnig ráðgjöf varðandi sameiningar, s.s. skiptihlutföll, aðferðafræði og endurskipulagningu í kjölfar samruna.Capacent Glacier býður upp á  lausnir þar sem ráðgjafar í stefnumótun, ferlum, áætlanagerð og á fleiri sviðum geta tekið að sér afmarkaða hluta verkefnis við stöðumat á fyrirtækjum, áreiðanleikakönnun og endurskipulagningu efnahags þeirra, m.a. í samvinnu við lánastofnanir.

Á sviði fjármálaráðgjafar aðstoðum við fyrirtæki við virðisrýrnunarpróf, óháð verðmöt, hagkvæmnisathuganir og getum, sem óháð fyrirtæki, gefið hlutlaust álit á fjármálagerningum og/eða forsendum þeirra. Okkar ráðgjöf og þjónusta við fjármögnun getur falist í leit að aðkomu sérhæfðra fjárfesta að fyrirtækjum, milligöngu og ráðgjöf við fjármögnun, t.d. með hlutafjáraukningu og útgáfu breytilegra skuldabréfa.
 
Starfsmenn Capacent Glacier hafa annast ráðgjöf á  verkefnum fyrir m.a. alþjóðleg jarðvarma- og sjávarútvegsfyrirtæki, flugfélögsem snúa að skráningu félaga í innlendar og erlenda kauphallir, við kaup og sölu

Nánari upplýsingar:
Sigurður Harðarson sig.hardarson@capacentglacier.is
Magnús Bjarnason magnus.bjarnason@capacentglacier.is
Print Bookmark and Share